Fréttir og pistlar
Þórunn Sveinbjörnsdóttir hlaut viðurkenningu Öldrunarráðs Íslands árið 2022.
Þórunn Sveinbjörnsdóttir og öldrunarþjónustan eiga langt og farsælt samstarf. Eftir að börnin hennar komust á legg vann hún á leikskóla sem leiddi hana í trúnaðarstörf fyrir verkakvennafélagið Sókn þar sem hún var meðal annars í byggingarnefnd Sóknarhússins í Skipholti, varaformaður félagsins og síðan formaður. Umönnunarstörf inni á öldrunarstofnunum voru henni hugleikin og þá ekki síst menntun starfsmanna í umönnunarstörfum og hvernig hægt væri að tengja menntun þeirra betri launum og um leið að byggja brú yfir í frekara nám svo sem félags- og sjúkraliðanám. Á árunum 1995-2005 var Þórunn í stjórn Öldrunaráðs Íslands fyrir hönd ASÍ og síðustu árin sem formaður og aftur tíu árum seinna og þá sem fulltrúi Landsambands eldri borgara.
Afskiptum Þórunnar af málefnum eldra fólks var hvergi nærri lokið eftir að hún lauk störfum hjá Eflingu. Árið 2013 varð hún formaður Félags eldri borgara í Reykjavík í fjögur ár og síðan formaður Landssambands eldri borgara. Samstarf Þórunnar sem formanns Félags eldri borgara í Reykjavík og velferðarsviðs borgarinnar var gjöfult þar sem áherslan var meðal annars á tölvukennslu, bæklingagerð um öryggi eldra fólks í heimahúsum og akstur eldra fólks á efri árum. Símavina verkefni þegar að Covid geisaði sem hæst og yfirhöfuð velferðartækni sem gagnast gæti eldra fólki, það voru hennar ær og kýr segir náin samstarfskonan hjá borginni.
Þórunn lætur ekki deigan síga, hún situr í dag í verkefnastjórn sem leiðir vinnu við aðgerðaráætlun vegna heildarendurskoðunar á þjónustu við eldra fólk sem er skipuð af heilbrigðisráðuneytinu og eining er hún formaður Framkvæmdasjóðs aldraðra.
Þórunn er líka skógarbóndi en það starf átti að taka við þegar hún lét af störfum hjá Eflingu meðfram félagsstörfum og þannig er það enn þann dag í dag þar sem að plöntur eru komnar yfir 50 þúsund sem hún hefur ásamt sínu fólki komið til.
Loksins verður aðalfundur Öldrunarráðs Íslands haldinn með eðlilegu sniði.
Fundurinn verður á Grand hóteli mánudaginn 23. maí 2022 Kl. 14:00 - allir velkomnir
Auk hefðbundinna aðalfundarstarfa er hefð fyrir því að veita styrki úr rannsóknarsjóði Öldrunarráðs Íslands sem kenndur er við Gísla Sigurbjörnsson fyrrum forstjóra á Grund. Að þessu sinni ákvað stjórn Öldrunarráðs að styrkja tvö verkefni, Snjallhreyfilausnir og Næringarástand íbúa hjúkrunarheimilis á Akureyri um 250.000 kr. hvort. Styrkþegar munu koma og kynna verkefnin á fundinum.
Öldrunarráð hefur mikinn áhuga á að vekja umræðu um dánaraðstoð og stefnir að því að hafa málþing um það málefni í haust. Til að hefja þá umræðu og vonandi varpa ljósi á það hvernig mikilvægast er að nálgast umræðuna munu Ingrid Kuhlman formaður Lífsvirðingar, félags um dánaraðstoð og Jóhann Björnsson, heimspekingur vera með framsögu og fara yfir það sem þau telja mikilvægast í þeirri nálgun.
Allar frekari upplýsingar veitir Jórunn Ósk Frímannsdóttir Jensen, formaður Öldrunarráðs Íslands í síma: 8245944 eða á netfangið:
Allir eru velkomnir á aðalfundinn
Til aðildarfélaga
Öldrunarráðs Íslands
Reykjavík, 09.05.2022.
Efni: AÐALFUNDUR ÖLDRUNARRÁÐS ÍSLANDS 2022
Hér með er boðað til aðalfundar Öldrunarráðs Íslands
Mánudaginn 23. maí 2022 Kl. 14:00
Fundurinn verður haldinn á Grand Hótel Reykjavík, Sigtúni 28, 105 Reykjavík í Setrinu, inn af veitingastaðnum á fyrstu hæð.
Dagskrá:
- Hefðbundin aðalfundarstörf samkvæmt lögum ráðsins
- Nafnakall fulltrúa með atkvæðisrétt
- Lögð fram skýrsla stjórnar ásamt endurskoðuðum ársreikningum
- Skýrsla Rannsóknarsjóðs
- Lögð fram tillaga stjórnar að fjárhagsáætlun næsta árs og aðildargjöldum.
- Lagabreytingar.
- Lagðar fram tillögur eða ályktanir sem borist hafa.
- Kosning formanns, annarra stjórnarmanna og endurskoðenda.
- Afhending styrkja Rannsóknarsjóðs
- Kynning frá styrkþegum
- Dánaraðstoð – hvernig er best að nálgast umræðuna
- Ingrid Kuhlman, formaður Lífsvirðingar, félags um dánaraðstoð.
- Óstaðfest
- Önnur mál
- Fundarslit
Allir eru velkomnir á aðalfundinn.
Aðildarfélög eru beðin um að tilkynna þátttöku á aðalfund með því að senda kjörbréf, á netfangið
Fyrir hönd stjórnar Öldrunarráðs Íslands
Jórunn Ósk Frímannsdóttir Jensen, formaður
Fréttir og pistlar
Hér er að finna fréttir og pistla um málefni Öldrunarráðs Íslands og tengt efni.
Viðurkenningar Öldrunarráðs
Árlega veitir Öldrunarráð Íslands sérstaka viðurkenningu til einstaklings, stofnunar eða félagasamtaka sem þykja hafa unnið einstakt starf tengt málefnum aldraðra. Öllum er frjálst að senda inn tilnefningar og er auglýst eftir tilnefningum í fjölmiðlum. Viðurkenningin er svo veitt á aðalfundi Öldrunarráðs, sem haldinn er í maí.
Rannsóknarsjóður Öldrunarráðs
Rannsóknasjóður Öldrunarráðs Íslands hefur það hlutverk að styðja við bakið á rannsóknum í öldrunarmálum á Íslandi auk sérstakra verkefna annarra í málaflokknum, sem stjórn sjóðsins metur til þess fallin hverju sinni. Reynt er að veita styrki úr sjóðnum árlega. Aðalhvatamaður að stofnun sjóðsins var Gísli heitinn Sigurbjörnsson, forstjóri hjúkrunarheimilisins Grundar. Venja hefur verið að úthluta úr sjóðnum í námunda við afmælisdag Gísla, sem er 29. október.
Ráðstefnur og fundir
Hér er að finna upplýsingar um áhugaverðar ráðstefnur og fundi sem tengjast Öldrunarmálum.