• Fréttir
  • Um Öldrunarráð
    • Stjórn
    • Lög
    • Aðildarfélög
    • Ársskýrslur
  • Ráðstefnur og fundir
  • Rannsóknarsjóður
    • Skipulagsskrá
  • Viðurkenningar
    • Skilyrði fyrir starfslok
  • Hafðu samband

Viðurkenningar

Árlega veitir Öldrunarráð Íslands sérstaka viðurkenningu til einstaklings, stofnunar eða félagasamtaka sem þykja hafa unnið einstakt starf tengt málefnum aldraðra. Öllum er frjálst að senda inn tilnefningar og er auglýst eftir tilnefningum í fjölmiðlum. Viðurkenningin er svo veitt á aðalfundi Öldrunarráðs, sem haldinn er í maí.

Viðurkenning Öldrunarráðs Íslands 2024

28 maí 2025

Árlega veitir Öldrunarráð Íslands sérstaka viðurkenningu sem kallast Fjöreggið til einstaklings,stofnunar eða félagasamtaka sem hafa unnið einstakt starf tengt málefnum eldra fólks.
Stjórn Öldrunarráðs ákvað að veita Rannveigu Guðnadóttur viðurkenninguna og Fjöreggið fyrir árið 2024. Rannveig er stofnandi og verkefnastjóri Eden Alternative á Íslandi. Rannveig er hjúkrunarfræðingur með Diplóma í Stjórnun, MSc í kennslu og öldrunarfræði. Hugsjón Rannveigar er að vellíðan sé sett í fyrsta sæti þeirra einstaklinga sem þurfa þjónustu og stuðning sem og þeirra sem þjónusta og styðja aðra.

Viðurkenning ÖÍ 2024

Viðurkenning Öldrunarráðs Íslands 2023

11 mars 2024

 Árlega veitir Öldrunarráð Íslands sérstaka viðurkenningu til einstaklings, stofnunar eða félagasamtaka sem þykja hafa unnið einstakt starf tengt málefnum aldraðra. Síðustu tvö ár hafa einstaklingar hlotið þessa viðurkenningu, á síðasta ári var það Þórunn Sveinbjörnsdóttir fyrir hennar ötula starf í þágu aldraðra og enn er Þórunn að og árið þar á undan var það Þórný Þórarinsdóttir sem hlaut fjöreggið.

Stjórn Öldrunarráðs Íslands var sammála um að fjöreggið, viðurkenningu Öldrunarráðs árið 2023, hlytu Hollvinasamtök Hraunbúða í Vestmannaeyjum. Margar áhugaverðar tilnefningar bárust og úr vöndu var að ráða eins og oft er. Sólveig Adolfsdóttir og Þór Vilhjálmsson veittu egginu viðtöku fyrir hönd samtakanna.

Nánar …

Tilnefning til viðurkenningar Öldrunarráðs Íslands 2023

11 desember 2023

Viðurkenning Öldrunarráðs Íslands 2022

19 apríl 2023

Þórunn Sveinbjörnsdóttir hlaut viðurkenningu Öldrunarráðs Íslands árið 2022. 

Þórunn Sveinbjörnsdóttir og öldrunarþjónustan eiga langt og farsælt samstarf. Eftir að börnin hennar komust á legg vann hún á leikskóla sem leiddi hana í trúnaðarstörf fyrir verkakvennafélagið Sókn þar sem hún var meðal annars í byggingarnefnd Sóknarhússins í Skipholti, varaformaður félagsins og síðan formaður. Umönnunarstörf inni á öldrunarstofnunum voru henni hugleikin og þá ekki síst menntun starfsmanna í umönnunarstörfum og hvernig hægt væri að tengja menntun þeirra betri launum og um leið að byggja brú yfir í frekara nám svo sem félags- og sjúkraliðanám. Á árunum 1995-2005 var Þórunn í stjórn Öldrunaráðs Íslands fyrir hönd ASÍ og síðustu árin sem formaður og aftur tíu árum seinna og þá sem fulltrúi Landsambands eldri borgara.

Afskiptum Þórunnar af málefnum eldra fólks var hvergi nærri lokið eftir að hún lauk störfum hjá Eflingu. Árið 2013 varð hún formaður Félags eldri borgara í Reykjavík í fjögur ár og síðan formaður Landssambands eldri borgara. Samstarf Þórunnar sem formanns Félags eldri borgara í Reykjavík og velferðarsviðs borgarinnar var gjöfult þar sem áherslan var meðal annars á tölvukennslu, bæklingagerð um öryggi eldra fólks í heimahúsum og akstur eldra fólks á efri árum. Símavina verkefni þegar að Covid geisaði sem hæst og yfirhöfuð velferðartækni sem gagnast gæti eldra fólki, það voru hennar ær og kýr segir náin samstarfskonan hjá borginni.

Þórunn lætur ekki deigan síga, hún situr í dag í verkefnastjórn sem leiðir vinnu við aðgerðaráætlun vegna heildarendurskoðunar á þjónustu við eldra fólk sem er skipuð af heilbrigðisráðuneytinu og eining er hún formaður Framkvæmdasjóðs aldraðra.


Þórunn er líka skógarbóndi en það starf átti að taka við þegar hún lét af störfum hjá Eflingu meðfram félagsstörfum og þannig er það enn þann dag í dag þar sem að plöntur eru komnar yfir 50 þúsund sem hún hefur ásamt sínu fólki komið til. 

Tilnefning til viðurkenningar Öldrunarráðs Íslands 2022

13 desember 2022

  1. Fjöreggið hlaut níræð kona sem heimsækir aldraða
  2. Opið fyrir umsóknir um Viðurkenningu Öldrunarráðs Íslands 2021
  3. Viðurkenning Öldrunarráðs Íslands haustið 2020
  4. Ósk um tilnefningar 2020
  • 1
  • 2
  • 3
  • 4
  • 5

Eldri greinar

  • Ársskýrsla 2024-2025
  • „Þú þarft að skipta um lykilorð“
  • "Þú þarft að skipta um lykilorð"- að eldast á viðsjárverðum tímum
  • "Þú þarft að skipta um lykilorð"- að eldast á viðsjárverðum tímum
  • Tilnefning til viðurkenningar Öldrunarráðs Íslands 2023
  • Tilnefning til viðurkenningar Öldrunarráðs Íslands 2023
  • Aðalfundur Öldrunarráðs Íslands 2023
  • Viðurkenning Öldrunarráðs Íslands 2022
  • Viðurkenning Öldrunarráðs Íslands 2022
  • Málþing um millistigið

Öldrunarráð Íslands - Snorrabraut 58, 105 Reykjavík - Sími 414 9500 - Netfang:  oldrunarrad@oldrunarrad.is