• Fréttir
  • Um Öldrunarráð
    • Stjórn
    • Lög
    • Aðildarfélög
    • Ársskýrslur
  • Ráðstefnur og fundir
  • Rannsóknarsjóður
    • Skipulagsskrá
  • Viðurkenningar
    • Skilyrði fyrir starfslok
  • Hafðu samband

Viðurkenningar

Árlega veitir Öldrunarráð Íslands sérstaka viðurkenningu til einstaklings, stofnunar eða félagasamtaka sem þykja hafa unnið einstakt starf tengt málefnum aldraðra. Öllum er frjálst að senda inn tilnefningar og er auglýst eftir tilnefningum í fjölmiðlum. Viðurkenningin er svo veitt á aðalfundi Öldrunarráðs, sem haldinn er í maí.

Fjöreggið hlaut níræð kona sem heimsækir aldraða

01 desember 2021

Þórný Þórarinsdóttir hlaut Fjöregg Öldrunarráðs Íslands á aðalfundi félagsins sem haldinn var í vikunni. Fjöreggið er árlega veitt til einstaklings, stofnunar eða félagasamtaka sem þykja hafa unnið gott og óeigingjarnt starf í þágu aldraðra. Öldrunarráði bárust tvær tilnefningar um Þórnýju sem er vel að Fjöregginu komin. Í áravís hefur hún heimsótt aldraða sem ekki eiga heimangengt og lætur ekkert aftra sér. Oft er um jafnaldra hennar að ræða á hjúkrunarheimilum en Þórný er níræð. Hún fer í heimsóknirnar með strætisvagni, leið 14, hvernig sem viðrar. Oftar en ekki eru heimabakaðar pönnukökur í farteskinu hennar sem hún hún gefur þeim sem hún er að heimsækja.

Auk hefðbundinna aðalfundarstarfa er hefð fyrir því að veita styrki úr rannsóknarsjóði Öldrunarráðs Íslands sem kenndur er við Gísla Sigurbjörnsson fyrrum forstjóra á Grund. Að þessu sinni ákvað stjórn Öldrunarráðs að styrkja tvö verkefni, Snjallhreyfilausnir og Næringarástand íbúa hjúkrunarheimilis á Akureyri um 250.000 kr. hvort. Fyrra verkefnið stefnir að því að fara í notendaþróun og samvinnu við stofnanir og stofur á Norðurlandi sem gætu nýtt sér kerfið eftir aðgerðir og við endurhæfingu sem og til að auka líkamlega getu eldri einstaklinga. Hitt verkefnið lýtur að því að kanna næringarástand íbúa hjúkrunarheimila hérlendis til að koma inn með íhlutandi aðgerðir til þeirra sem á þurfa að halda.

Allar frekari upplýsingar veitir formaður Öldrunarráðs Íslands, Jórunn Ósk Frímannsdóttir Jensen í síma: 824 5944

Opið fyrir umsóknir um Viðurkenningu Öldrunarráðs Íslands 2021

30 september 2021

Viðurkenning Öldrunarráðs Íslands haustið 2020

09 mars 2021

Árlega veitir Öldrunarráð Íslands viðurkenningu að  fengnum tilnefningum sem geta verið um einstakling, stofnun eða félagasamtök.

Á aðalfundi Öldrunarráðs Íslands í desember 2020 var tilkynnt um hver hlyti viðurkenninguna árið 2020.

Að þessu sinni var það einstaklingur sem tilnefndur var vegna starfa sinna að öldrunarmálum í sinni heimabyggð.

Ágústa Þorkelsdóttir frá Refsstað, formaður Félags eldri borgara Vopnafirði og Bakkafirði er handhafi viðurkenningar Öldrunarráðs Íslands árið 2020.

Ágústa hefur verið mjög virk í félagsstörfum um áratugaskeið en að þessu sinni vakti það mikla athygli að á hennar vakt hefur verið unnið æði merkilegt starf við að safna gömlum ljósmyndum, skanna þær inn, finna nöfn á fólki sem þar er að finna og skrásetja. Vegna þessa magnaða verkefnisins hefur myndast líflegt og skemmtilegt félagsstarf í heimabyggð. Myndirnar í safninu eru nú orðnar yfir 11.000 talsins. Safnið með skrásetningu þess geymir ómetanlegar upplýsingar um tímann, þann sem liðinn er og ekki síður tímana sem við lifum nú.

Mikilvægi þessa óeigingjarna starfs er óumdeilanlegt og afar mikilvægt að merkilegar myndir og saga þess fólks þar er að finna glatist ekki.

Öldrunarráð Íslands færir Ágústu árnaðaróskir fyrir þetta merka starf sem mun örugglega verða til eftirbreytni miklu víðar.

Ósk um tilnefningar 2020

30 september 2020

Auglýsing_002-pdf.jpg

Viðurkenningar Öldrunarráðs 2017

22 mars 2017

Vidurkenning2017

  1. Viðurkenning Öldrunarráðs Íslands fyrir fyrirmyndarstarf
  2. Viðurkenning Öldrunarráðs Íslands 2016 - Einstaklingar
  3. Viðurkenning Öldrunarráðs Íslands 2016 - Starfslok starfsmanna
  4. Guðrún Birna Gísladóttir á Grund hlaut viðurkenningu Öldrunarráðs Íslands 2015
  • 1
  • 2
  • 3
  • 4
  • 5

Eldri greinar

  • Ársskýrsla 2024-2025
  • „Þú þarft að skipta um lykilorð“
  • "Þú þarft að skipta um lykilorð"- að eldast á viðsjárverðum tímum
  • "Þú þarft að skipta um lykilorð"- að eldast á viðsjárverðum tímum
  • Tilnefning til viðurkenningar Öldrunarráðs Íslands 2023
  • Tilnefning til viðurkenningar Öldrunarráðs Íslands 2023
  • Aðalfundur Öldrunarráðs Íslands 2023
  • Viðurkenning Öldrunarráðs Íslands 2022
  • Viðurkenning Öldrunarráðs Íslands 2022
  • Málþing um millistigið

Öldrunarráð Íslands - Snorrabraut 58, 105 Reykjavík - Sími 414 9500 - Netfang:  oldrunarrad@oldrunarrad.is