• Fréttir
  • Um Öldrunarráð
    • Stjórn
    • Lög
    • Aðildarfélög
    • Ársskýrslur
  • Ráðstefnur og fundir
  • Rannsóknarsjóður
    • Skipulagsskrá
  • Viðurkenningar
    • Skilyrði fyrir starfslok
  • Hafðu samband

Almennt efni

Framtíðarþing um farsæla öldrun á Selfossi 2015 - Niðurstöður

08 febrúar 2016

framtidarthing-um-farsaela oldrun selfossi 2015Mánudaginn 16. nóvember 2015 kl. 16.30-20.30 var haldið Framtíðarþing um farsæla öldrun í þjónustumiðstöð aldraðra á Selfossi, Grænumörk 5. Þingið var samvinnuverkefni Öldrunarráðs Íslands, Landsambands eldri borgara, Velferðarráðuneytisins og sveitarfélaganna Hrunamannahrepps, Hveragerðisbæjar, Bláskógabyggð, Sveitarfélagsins Ölfus, Rangárþings eystra, Skeiða- og Gnúpverjahrepps og Sveitarfélagsins Árborgar. Stutt ávörp í upphafi þings fluttu Haraldur Einarsson 8. þingmaður Suðurkjördæmis og Haukur Ingibergsson formaður Landssambands eldri borgara.

Nánar …

Stjórn Öldrunarráðs Íslands 2015 - 2016

09 nóvember 2015

Pétur Magnússon, formaður
frá Sjómannadagsráði
This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.
Hrafnistam Laugarási, 104 Reykjavík
GSM: 841 1600
Vinnusími: 585 9500                                                        

Jóna Valgerður Kristjánsdóttir, varaformaður
frá Landssambandi eldri borgara
This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.
Mýrartunga 2, 380 Reykhólahreppi
GSM: 893 6396
Vinnusími: 434 7754                                                        

Jón H. Magnússon, gjaldkeri
frá Samtökum atvinnulífsins
This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.                    
Neðstaleiti 2, 103 Reykjavík
GSM: 821 8575                                                                 
Heimasími: 553 4575                                                       

Guðlaug Jóna Hilmarsdóttir, ritari
frá Sveitarfélaginu Árborg
This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.                       
Félagsþjónusta Árborgar               
Austurvegi 2, 800 Selfoss
Vinnusími: 480 1900                                                      

Ingibjörg Þórisdóttir, meðstjórnandi
This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.         
frá Félagi íslenskra hjúkrunarfræðinga
Þjónustumiðstöð Laugardals og Háaleitis
Efstaleiti 1, 103 Reykjavík
GSM: 893 5135                                                                   
Vinnusími: 411 1590                                                        

Aðalbjörg Traustadóttir, meðstjórnandi
This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.                   
Skrifstofustjóri á velferðarsviði Reykjavíkurborgar        
Efstaleiti 1, 103 Reykjavík
GSM: 664 7760
Vinnusími: 411 9025                                  

Fanney Helga Friðriksdóttir, meðstjórnandi
frá Alþýðusambandi Íslands
Félagsliði þjónustuíbúðum aldraðra
Norðurbrún 1, 104 Reykjavik
This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.
GSM 861 2760
Vinnusími: 411 2760

Ragnhildur G. Hjartardóttir, meðstjórnandi
frá Hjúkrunarheimilinu Mörk
This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.
Mörk, hjúkrunarheimili
Suðurlandsbraut 66, 108 Reykjavík
GSM: 894 4447
Vinnusími: 560 1703

Ólafur Þór Gunnarsson, meðstjórnandi
frá Öldrunarfræðafélagi Íslands
This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.

Hulda S. Helgadóttir, starfsmaður Öldrunarráðs Íslands
This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.
Sími: 585 9508
GSM 693 9508

Framtíðarþing um farsæla öldrun

04 júní 2013

Þann 7. mars síðast liðinn var haldið Framtíðarþing um farsæla öldrun í Tjarnarsal Ráðhúss Reykjavíkur. Þingið var samstarfsverkefni Öldrunarráðs Íslands, Landsambands eldri borgara, Öldrunarfræðafélags Íslands, Velferðarráðuneytis, Sambands íslenskra sveitarfélaga, Reykjavíkurborgar, Fagdeildar öldrunarhjúkrunarfræðinga, Félags sjúkraþjálfara í öldrunarþjónustu og Iðjuþjálfafélags Íslands.Aðdragandi fundarins var Evrópuár um virkni aldraðra og samstöðu kynslóðanna árið 2012 hjá Evrópusambandinu en í kjölfarið var ákveðið að efna stefna til þingsins með eftirfarandi markmið að leiðarljósi:

  • Að vekja jákvæða athygli á öldruðum, stöðu þeirra og hvernig þeir líta sín mál til framtíðar.
  • Að skapa umræðu um öldrunarmál, væntingar og viðhorf til efri áranna.
  • Að skapa vettvang fyrir þá sem koma að öldrunarmálum á Íslandi og koma af stað heilbrigðri og skynsamlegri umræða um þessa kynslóð.
  • Að skapa leiðbeiningar til stjórnvalda.

Fundarfyrirkomulag byggði á sömu hugmyndafræði og notuð var á Þjóðfundi 2009 og 2010. Unnið var á sextán 8-9 manna borðum og á hverju borði var sérþjálfaður borðstjóri en hans hlutverk var að sjá til þess að allir við borðið fengju jöfn tækifæri til að tjá sig og að tryggja virka hlustun þannig að öll sjónarmið kæmust að. Þátttakendur voru 125 talsins og var þátttakendum í mismunandi aldurshópum og starfsfólki sem tengist öldrunarmálum blandað í hópa á hverju borði.

Miklar og stórskemmtilegar umræður voru á þinginu þar sem margt fróðlegt kom fram. Spurningarnar sem fundarmenn glímdu við voru eftirfarandi:

  • Hvað er það besta við að eldast?
  • Hvaða væntingar hefur samfélagið til aldraðra? / Hvaða væntingar hafa aldraðir til samfélagsins?
  • Hvað er farsæl öldrun?
  • Hvernig stuðlum við að farsælli öldrun?

Sjálfstæði og sjálfræði á jákvæðan og lifandi hátt - Stefnumótalína, umboðsmaður aldraðra og jafnvel stjórnmálaflokkur
Þegar litið er á niðurstöðurnar má segja að í grunninn þá vilja aldraðir – rétt eins og við öll - lifa hinu fullkomna lífi, búa við fjárhagslegt sjálfstæði og góða heilsu, hafa greiðan aðgang að góðri heilsugæslu og góðu og heppilegu húsnæði. Þeir vilja búa við sjálfræði og vera virkir þjóðfélagsþegnar, sem hlustað er á til jafn við aðra þjóðfélagshópa. Þeir vilja lifa lífinu lifandi með sínum nánustu og hafa tíma til tómstunda, sjálfsræktar og geta sinnt ýmsu sem setið hefur á hakanum. Þeir telja mikilvægt að yngri þjóðfélagshópar og samfélagskerfið í heild endurskoði viðhorf sín til aldraðra og tileinki sér jákvæðara viðmót í garð þeirra enda séu aldraðir að mörgu leyti dýrmæt en ónýtt auðlind.

Í niðurstöðunum koma einnig fram óskir um einstök atriði eins og stefnumótalínu fyrir 67 ára og eldri, að embætti umboðsmanns aldraðra verði sett á fót og vangaveltur um hvort aldraðir ættu að vera með eigin stjórnmálaflokk. Á einum stað segir að ræða þurfi oftar við aldraða í fréttum og fréttaþáttum hvort sem er í sjón- eða hljóðvarpi.

Nánari umfjöllun um Framtíðarþing um farsæla öldrun og  niðurstöður þess er að finna í meðfylgjandi skýrslu.

Dreifing, birting og notkun
Það er velkomið að dreifa skýrslunni áfram og/eða birta hana. Til dæmis á heimasíðum.
Á Framtíðarþingi um farsæla öldrun kom fram mikið magn gagna sem birtast öll í lokaskýrslunni. Nú þegar hefur borist ein beiðni um að nota heildargögnin í rannsóknartilgangi, í tengslum við meistararitgerð í öldrunarfræðum. Beiðnin vakti undirbúningshópinn til umhugsunar um hagnýtt gildi þess að sem flestir nemendur myndu fá tækifæri til að vinna með gögnin, til að varpa enn skýrara ljósi á farsæla öldrun.  Undirbúningshópurinn hvetur því til að gögnin séu nýtt enn frekar, til viðbótar við lokaskýrslu og miðlun á niðurstöðum sem aðstandendur þingsins standa fyrir.

Frekari upplýsingar eða nánari kynning á framtíðarþinginu  www.facebook.com/farsaeloldrun  

Pétur Magnússon, formaður Öldrunarráðs Íslands, Sími 841 1600

Hægt er að ná í loka skýrsluna hér

Ársskýrslur

27 maí 2013

Hér má nálgast ársskýrslur Öldrunarráðs Íslands

Ársskýrsla 2010-2011

Ársskýrsla 2011-2012

Ársskýrsla 2012-2013

Ársskýrsla 2013-2014

Ársskýrsla 2014 - 2015

Ársskýrsla 2015-2016

Ársskýrsla 2016-2017

Ársskýrsla 2017-2018

Ársskýrsla 2018-2019

Ársskýrsla 2024-2025    

Geðheilsa eldri borgara

10 apríl 2013

logo auglysing

Geðheilsa eldri borgara

Málþing haldið 11. apríl 2013, kl. 9:00-14:30 á Hótel Natura

Fundarstjórar: Þórlaug Sveinsdóttir fyrir hádegi og Erla Kristbjörg Sigurgeirsdóttir eftir hádegi

Nánar …

  1. Væntanlegar

Bls 3 af 4

  • 1
  • 2
  • 3
  • 4

Eldri greinar

  • Ársskýrsla 2024-2025
  • „Þú þarft að skipta um lykilorð“
  • "Þú þarft að skipta um lykilorð"- að eldast á viðsjárverðum tímum
  • "Þú þarft að skipta um lykilorð"- að eldast á viðsjárverðum tímum
  • Tilnefning til viðurkenningar Öldrunarráðs Íslands 2023
  • Tilnefning til viðurkenningar Öldrunarráðs Íslands 2023
  • Aðalfundur Öldrunarráðs Íslands 2023
  • Viðurkenning Öldrunarráðs Íslands 2022
  • Viðurkenning Öldrunarráðs Íslands 2022
  • Málþing um millistigið

Öldrunarráð Íslands - Snorrabraut 58, 105 Reykjavík - Sími 414 9500 - Netfang:  oldrunarrad@oldrunarrad.is