María Finster Úlfarsson doktorsnemi í hjúkrunarfræði við Háskólann á Akureyri hlaut styrk Rannsóknarsjóðs Öldrunarráðs Íslands í ár.  Hún er að vinna að rannsókn á reynslu sona af tengslum við aldraðar mæður sínar á hjúkrunarheimili og stuðningi sem þeir fá frá heilbrigðisstarfsfólki.  

Rannsóknin er fyrsti hluti doktorsrannsóknar Maríu en heildarmarkmið rannsóknarinnar er að kanna kynjamun á samskiptum fullorðinna barna og mæðra þeirra, sem búa á hjúkrunarheimilum og greina þarfir barnanna fyrir fræðslu og stuðning frá heilbrigðisstarfsfólki. Leiðbeinandi Maríu er Dr. Kristín Þórarinsdóttir, dósent.

Stjórn öldrunarráðs bárust nokkrar góðar umsóknir og því var úr vöndu að ráða. Rannsóknin þótti metnaðarfull og eins þótti stjórn áhugavert að beina sjónum sínum að reynslu sona og þeirra þarfa þar sem mun oftar hefur verið litið til reynslu dætra.

IMG 4616

Á meðfylgjandi mynd má sjá hluta stjórnar Öldrunarráðs Íslands með Maríu styrkþega í miðið.  Styrkurinn var veittur að venju á afmælisdegi Gísla Sigurbjörnssonar upphafsmanns sjóðsins í glænýju kaffihúsi hjúkrunarheimilisins Grundar sem var vígt við sama tilefni.